Benfica 1 - 0 Bayern
1-0 Andreas Schjelderup ('13)
1-0 Andreas Schjelderup ('13)
Norski kantmaðurinn Andreas Schjelderup sem er eftirsóttur af liðum í ensku úrvalsdeildinni og víðar skoraði eina mark leiksins er Benfica vann óvæntan sigur á FC Bayern í lokaumferð riðlakeppninnar á HM félagsliða.
Schjelderup skoraði eina mark leiksins eftir skyndisókn á 13. mínútu en Bayern var sterkara liðið allan leikinn. Benfica átti nokkrar rispur en að lokum reyndist Anatoliy Trubin markvörður besti leikmaður vallarins. Hann bjargaði sínum mönnum nokkrum sinnum meistaralega og hélt markinu hreinu gegn öflugum andstæðingum.
Þessi úrslit koma á óvart þar sem Benfica hirðir toppsæti riðilsins af Bayern með sigrinum. Benfica er þar með 7 stig og endar Bayern í öðru sæti með 6 stig. Boca Juniors er þar með úr leik.
Þetta þýðir að Benfica mætir líklegast Chelsea í 16-liða úrslitum, á meðan Bayern lendir gegn brasilíska félaginu Flamengo.
Bayern gæti því farið 'auðveldari' leið í útsláttarkeppninni útaf þessu tapi.
Athugasemdir