Fram hefur biðlað til aganefndar vegna rauða spjaldsins sem Kyle McLagan fékk í lok leiks gegn Breiðabliki í gær. Félagið vill að spjaldið verði dregið til baka.
Það myndaðist mikill hiti eftir að Breiðablik jafnaði leikinn undir lokin. Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, skoraði úr vítaspyrnu og ætlaði sér að ná í boltann og koma honum hratt aftur á miðjuna. Það tókst ekki vel eins og sjá má í spilaranum neðst.
Hann hrinti Kennie Chopart sem féll til jarðar og reyndi svo af miklum ákafa að komast í boltann sem Viktor Freyr Sigurðsson, markmaður Fram, hélt á. Höskuldur kom aftan að honum og endaði á að grípa utan um VIktor sem féll til jarðar með Höskuld á bakinu.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 1 Fram
Framarar voru ekki ánægðir með þessa framkomu, Kyle greip í Höskuld, tók hann til hliðar og ýtti honum í hliðarnetið á markinu. Þegar Arnar Þór Stefánsson gerði upp atvikið fengu þeir Höskuldur og Kyle að líta rauða spjaldið.
Framarar eru ósáttir við þá niðurstöðu og mótmæltu skýrslu dómarans, telja skýrsluna alls ekki endurspegla atburðarásina.
Félagið sendi athugasemd á aganefnd KSÍ sem fundar í dag og óskar eftir því að rauða spjaldið verði dregið til baka. Rök Framara eru á þá leið að Kyle hafi verið að stilla til friðar og hans aðkoma að þessari atburðarás verðskuldi ekki rautt spjald.
Athugasemdir