Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 22:03
Ívan Guðjón Baldursson
HM: Auckland City náði í stig gegn Boca Juniors
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Auckland City 1 - 1 Boca Juniors
0-1 Nathan Garrow ('26, sjálfsmark)
1-1 Christian Gray ('52)

Áhugamannalið Auckland City frá Nýja-Sjálandi náði ótrúlegum úrslitum gegn argentínska stórveldinu Boca Juniors á HM félagsliða í dag.

Liðin mættust í Bandaríkjunum og leiddi Boca Juniors aðeins 0-1 í leikhlé þrátt fyrir mikla yfirburði í fyrri hálfleik. Auckland hafði fram að þessu tapað 10-0 gegn FC Bayern og 6-0 gegn Benfica í fyrstu tveimur umferðum riðlakeppninnar.

Í kvöld lenti Auckland undir eftir sjálfsmark í fyrri hálfleik en tókst að jafna metin með skallamarki eftir hornspyrnu í síðari hálfleik. Christian Gray skallaði hornspyrnu Jerson Lagos í netið til að jafna metin og nægði þetta mark að lokum til að tryggja stig.

Lokatölur urðu því 1-1 þrátt fyrir að Boca Juniors hafi átt 40 marktilraunir gegn þremur í leiknum. Nathan Garrow átti stórleik á milli stanganna eftir að hafa einnig átt stórleik í 6-0 tapi gegn Benfica. Þar varði hann 10 af 16 skotum sem hann fékk á sig.

Til gamans má geta að hinn 20 ára gamli Garrow er þriðji markvörður hjá Auckland City FC.

Þá má ekki rugla Auckland City FC saman við atvinnumannaliðið Auckland FC sem leikur í áströlsku deildinni.

Bæði lið eru fallin úr leik á HM án þess að sigra leik. Boca Juniors endar með tvö stig eftir gott jafntefli við Benfica í fyrstu umferð á meðan Auckland endar með eitt stig.
Athugasemdir
banner