Það hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgist með Bestu-deildinni að eftir jöfnunarmark Breiðabliks gegn Fram undir lok leiks á Kópavogsvelli í gær fór af stað hádramatísk atburðarás.
Í öllum hamaganginum tókust menn vel á og að lokum gaf Arnar Þór Stefánsson, dómari leiksins, þeim Höskuldi Gunnlaugssyni, fyrirliða Breiðabliks, og Kyle McLagan, varnarmanni Fram, báðum rautt spjald. Valgeir Valgeirsson, leikmaður Breiðabliks, hefur nú lagt orð, og myndband, í belg.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 1 Fram
Þar er Valgeir að bregðast við ummælum Hilmars Jökuls, fréttaritara Fótbolta.net og stuðningsmanns Breiðabliks, sem spurði, eftir að frétt var birt hér á Fótbolti.net þar sem kom fram að Framarar væru ósáttir við rauða spjaldið á Kyle, hvort þeir vildu ekki bara skipta á bönnum Kyle og annars leikmanns Fram.
Magnús Ingi Þórðarson blandaði sér inn í hringiðuna og greip í hálsmálið á treyju Valgeirs og setti hann í jörðina. Við það er Valgeir ósáttur.
Þeirri atburðarás er gerð góð skil í þessari frétt hér:
„Kyle McLagan fýkur líka út af í látunum, hann fer einhvern veginn í Höskuld og endar með því að ýta honum í hliðarnetið. Af Framurunum þá var það nú ekki hann sem átti helst að fá rautt spjald heldur Magnús Þórðarson, sem tekur utan um hálsinn á Valgeiri ... Fyrst að Arnar Þór Stefánsson var að velja einn úr hvoru liði eftir lætin þá getur Magnús Þórðarson heldur betur prísað sig sælan að hann var ekki sendur í sturtu þarna," sagði Elvar Geir í þættinum sem nálgast má hér að neðan.
Athugasemdir