Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM félagsliða: Atletico Madrid úr leik en PSG áfram
Mynd: EPA
Atletico Madrid er úr leik á HM félagsliða þrátt fyrir sigur gegn Botafogo í kvöld.

Antoine Griezmann skoraði eina mark leiksins undir lokin. Það dugði hins vegar ekki til en liðið hefði þurft að vinna leikinn enn stærra til að komast áfram.

Botafogo fer því áfram ásamt PSG sem vann Seattle Sounders.

Khvicha Kvaratskhelia kom PSG yfir með ansi skrautlegu marki. Vitinha átti skot sem var á leiðinni framhjá en boltinn fór í Kvaratskhelia og í netið.

Achraf Hakimi innsiglaði síðan sigurinn eftir hraða sókn.

Atletico Madrid 1 - 0 Botafogo
1-0 Antoine Griezmann ('87 )

Seattle Sounders 0 - 2 Paris Saint Germain
0-1 Khvicha Kvaratskhelia ('35 )
0-2 Achraf Hakimi ('66 )
Athugasemdir
banner
banner
banner