Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
   mið 25. júní 2025 11:56
Elvar Geir Magnússon
Liðin sem léku fyrsta úrslitaleikinn mætast í kvöld
Frá úrslitaleiknum 2023.
Frá úrslitaleiknum 2023.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
32-liða úrslit Fótbolti.net bikarsins, bikarkeppni neðri deilda, eru í gangi en Tindastóll, Ýmir, Reynir Sandgerði, Kári og KFA tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum í gær.

Tíu leikir verða í kvöld og svo verður dregið í 16-liða úrslit keppninnar í beinni textalýsingu í hádeginu á föstudaginn.

Meðal leikja kvöldsins er viðureign KFG og Víðis úr Garði sem fram fer í Garðabænum en þessi lið léku til úrslita á Laugardalsvelli 2023, í fyrsta sinn sem keppnin var haldin.

Ólafur Bjarni Hákonarson kom KFG yfir í þeim leik, Tómas Leó Ásgeirsson jafnaði úr víti og það var svo dramatík í lokin þegar Elís Már Gunnarsson skoraði sigurmarkið á 88. mínútu.

Leikurinn í Garðabænum í kvöld verður meðal leikja kvöldsins sem verða í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.

Selfoss varð meistari á síðasta ári eftir að hafa unnið KFA 3-1 á Laugardalsvelli. Selfoss er eðlilega ekki með ár þar sem liðið fór upp í Lengjudeildina


Athugasemdir