Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
   mið 25. júní 2025 22:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mikael mættur til Stokkhólms og er að skipta um félag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Mikael Neville Anderson er að ganga í raðir Djurgården. Frá þessu greinir Expressen en hann er mættur til Stokkhólms í Svíþjóð.

Djurgården er að kaupa hann á tvær milljónir evra en það var riftunarákvæðið í samningi Mikaels við danska félagið AGF.

Djurgården fór alla leið í undanúrslit Sambandsdeildarinnar í vor, en tapaði þar gegn verðandi meisturum í Chelsea. Liðið hefur byrjað þetta tímabil illa í deildinni, er einungis í níunda sæti þegar mótið er tæplega hálfnað.

„Ég get ekki staðfest neitt. Við verðum að bíða og sjá," sagði Mikael við Fotbollskanaen í dag. Fyrr í dag hafði AGF gefið út tilkynningu að félagið hefði náð samkomulagi við erlent félag um félagaskiptin.

Búast má við því að Mikael gangist undir læknisskoðun fyrir helgi og gangi í raðir Djurgården. Hann er algjör lykilmaður AGF og stórt nafn í dönsku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner