Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Neymar semur við Santos
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Brasilíska goðsögnin Neymar er búin að framlengja samning sinn við Santos um sex mánuði.

Neymar er því samningsbundinn uppeldisfélaginu sínu út árið en hann hefur verið mikilvægur hlekkur frá komu sinni í janúar.

Hinn 33 ára gamli Neymar hefur verið að glíma við mikið af meiðslum á undanförnum árum en hæfileikar hans með fótboltann eru óumtvíræddir. Hann kom með beinum hætti að 6 mörkum í 14 leikjum með Santos á árinu þrátt fyrir meiðslavandræði.

Í nýjum samningi Neymar við Santos er möguleiki á að framlengja um hálft eða eitt ár til viðbótar í desember. Það verður gert ef Neymar heldur sér í formi, en hann hefur aldrei unnið stórmót með Brasilíu.

Markmið Neymar er að fara með brasilíska landsliðinu á HM 2026. Hann hefur skorað 79 mörk í 128 landsleikjum.


Athugasemdir
banner