Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   mið 25. júní 2025 06:51
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Markvörður Esperance með afleita frammistöðu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Chelsea spilaði við Esperance frá Túnis í úrslitaleik um annað sæti D-riðils á HM félagsliða.

Liðin mættust í nótt og skóp Chelsea þægilegan þriggja marka sigur.

Enska stórveldið sýndi þó ekki sérlega mikla yfirburði þar sem leikurinn var nokkuð tíðindalítill. Lokatölur urðu 3-0 fyrir Chelsea en hægt er að skrifa öll mörk leiksins á Bechir Ben Said, markvörð Esperance.

Ben Said átti gjörsamlega afleitan leik eins og er hægt að sjá á myndbandinu hér fyrir neðan.

Hann neitaði að skutla sér í fyrstu tveimur mörkum Chelsea þó hann hefði hæglega getað varið minnst aðra marktilraunina. Í síðasta marki leiksins skutlaði hann sér loks en varði boltann í markið. Sjón er sögu ríkari.


Athugasemdir