Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
   mið 25. júní 2025 07:20
Ívan Guðjón Baldursson
Gera lokatilraun til að halda í Kenny Tete
Mynd: EPA
Greint hefur verið frá því síðustu daga að bakvörðurinn Kenny Tete sé á leið til Everton á frjálsri sölu frá Fulham.

Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano segir skiptin þó alls ekki vera frágengin þar sem Fulham sé að gera lokatilraun til að halda leikmanninum innan sinna raða.

Tete er 29 ára gamall og leikur sem hægri bakvörður að upplagi. Hann kom við sögu í 22 úrvalsdeildarleikjum með Fulham á síðustu leiktíð og gaf tvær stoðsendingar.

Tete rennur út á samningi hjá Fulham um næstu mánaðamót og gaf munnlegt samþykki fyrir samningi hjá Everton í síðustu viku. Fulham ætlar að reyna að fá leikmanninn til að skipta um skoðun með endurbættu samningstilboði.

   22.06.2025 12:00
Everton að landa Kenny Tete á frjálsri sölu

Athugasemdir
banner
banner
banner