Samuele Ricci hefur náð munnlegu samkomulagi við AC Milan um kaup og kjör og vonast nú til þess að félagið fari að ná samkomulagi við Torino.
Torino er með 28 milljóna evra verðmiða á þessum 23 ára leikmanni en Milan vonast til að fá hann lækkaðan.
Torino er með 28 milljóna evra verðmiða á þessum 23 ára leikmanni en Milan vonast til að fá hann lækkaðan.
Ricci skoraði eitt mark og átti tvær stoðsendingar í 36 leikjum með Torino á liðnu tímabili. Hann hefur leikið tíu landsleiki fyrir Ítalíu.
Milan ætlar sér að kaupa að minnsta kosti tvo miðjumenn í sumar og hefur áhuga á Granit Xhaka, miðjumanni Bayer Leverkusen.
Athugasemdir