Manchester City hefur fengið þá ábendingu frá þýsku goðsögninni Lothar Matthaus að fá Marc-Andre ter Stegen í sínar raðir. Hann hefur verið orðaður við Galatasaray að undanförnu.
Ter Stegen virðist ekki vera inni í myndinni hjá Barcelona eftir að félagið keypti Joan Garcia og stefnan er að halda Wojciech Szczesny.
Ter Stegen virðist ekki vera inni í myndinni hjá Barcelona eftir að félagið keypti Joan Garcia og stefnan er að halda Wojciech Szczesny.
Ederson er aðalmarkmaður City og á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið. Hann var nálægt því að fara til Sádi-Arabíu síðasta sumar.
„Sex ensk félög munu spila í Meistaradeildinni á næsta tímabili og ekkert af þeim er með það sterka markmenn til að segja, 'Ter Stegen yrði ekki styrking fyrir okkur.' Ég veit ekki hver plön Manchester City eru, en ég held þeir séu ekkert alltof ánægðir með Ederson."
„Ég held að ter Stegen væri klárlega markmaður sem myndi hjálpa City næstu 3-4 ár. Hann sýndi, sérstaklega í Þjóðadeildinni gegn Frökkum, að hann er enn í heimsklassa, þrátt fyrir að vera 33 ára," skrifar Mattheus fyrir Sky í Þýskalandi.
Ter Stegen var orðaður við Manchester City 2016 og ræddi í vetur um að hann hefði verið mjög nálægt því að fara til City frá Barcelona á þeim tíma.
Athugasemdir