Nicolas Jackson, framherji Chelsea, fékk að líta rautt spjald gegn Flamengo á HM félagsliða um liðna helgi.
Búið er að þyngja refsingu hans fyrir spjaldið, hann fékk sjálfkrafa eins leiks bann en niðurstaðan verður tveggja leikja bann.
Hann átti ljóta tæklingu og fékk verðskuldað rautt spjald. Hann baðst afsökunar eftir leikinn.

Jackson verður í banni gegn ES Tunis í lokaleik riðlakeppninnar og verður í banni í 16-liða úrslitunum ef Chelsea fer áfram.
Chelsea getur ekki áfrýjað banninu. Chelsea dugir jafntefli í leiknum í nótt til þess að fara áfram í útsláttarkeppnina.
Athugasemdir