Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Áhugi úr Bestu á markahæsta manni 2. deildar
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Jordan Adeyemo gekk í raðir Ægis í vetur og hefur verið funheitur með liðinu í 2. deildinni í sumar. Félög í deildunum fyrir ofan eru sögð fylgjast með Adeyemo og hefur hann m.a. verið orðaður við ÍBV í Bestu deildinni.

Hann er 24 ára framherji sem er með írskan og nígerískan ríkisborgararétt. Hann hafði fyrir tímabilið í ár einungis spilað á Írlandi, í efstu og næstefstu deild þar í landi.

Í níu leikjum hefur Adeyemo skorað ellefu mörk. Mörkin hafa komið í fimm lekjum; fjórar tvennur og ein þrenna. Hann skoraði tvennu í 6-1 heimasigri gegn Kára á laugardag. Hann skoaði níu mörk í fimm leikjum í Lengjubikarnum og eitt í bikarleiknum gegn KV sem KV vann eftir framlengingu.

Ægir situr í 2. sæti deildarinnar, með stigi minna en Þróttur Vogum. Adeyemo er með ellefu af 25 mörkum liðsins í fyrstu níu umferðunum. Hann skrifaði í vetur undir samning sem gildir út þetta tímabil.

Hans næsti leikur gæti verið gegn Haukum annað kvöld í 32-liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins.

Athugasemdir
banner
banner