Argentínumaðurinn efnilegi Franco Mastantuono skiptir til Real Madrid þegar hann á 18 ára afmæli í ágúst.
Mastantuono hefur verið nefndur nýi Lionel Messi enda er hann nokkuð smávaxinn og afar knár hægri kantmaður. Hann er þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við Real Madrid í sumar eftir Trent Alexander-Arnold og Dean Huijsen.
Xabi Alonso er nýr þjálfari Real Madrid og er búinn að spjalla við Mastantuono. Þeir eru báðir staddir í Bandaríkjunum þessa stundina á HM félagsliða, þar sem Alonso stýrir Madrídingum á meðan Mastantuono er byrjunarliðsmaður hjá River Plate.
„Það var magnað að spjalla við Xabi Alonso. Ég er honum ótrúlega þakklátur, við áttum mjög mikilvægt samtal. Þegar þú heyrir að þjálfarinn virkilega vill fá þig í liðið þá gefur það mikið sjálfstraust," sagði Mastantuono þegar hann var spurður út í félagaskiptin og nýja þjálfarann.
Alonso var einnig spurður út í samtalið við Mastantuono en taldi ekki við hæfi að deila einkasamræðum með almenningi.
Athugasemdir