
U19 landslið kvenna tapaði 0-1 gegn Finnlandi í æfingaleik í dag en leikurinn er hluti af æfingamóti í Noregi.
Þetta var fyrri æfingaleikur liðsins í ferðinni. Ísland mætir annað hvort Noregi eða Svíþjóð í leik um þriðja sætið.
Sá leikur fer fram á laugardag og verður í beinni útsendingu á síðu KSÍ í Sjónvarpi Símans.

Athugasemdir