Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 09:30
Elvar Geir Magnússon
Arsenal hefur áhuga á Rodrygo
Mynd: EPA
Arsenal hefur áhuga á að fá brasilíska vængmanninn Rodrygo frá Real Madrid í sumar, eftir að hann missti sitt fasta sæti í byrjunarliði Real Madrid á síðasta tímabili.

Rodrygo, sem er 24 ára gamall, stendur nú á krossgötum hjá félaginu með nýjum stjóra, Xabi Alonso, við stjórnvölinn. Mikil samkeppni er um sæti í sóknarlínu Madrídarliðsins þar sem Kylian Mbappe og Vinicius Júnior eiga föst sæti.

Rodrygo hefur ekki verið sáttur með spiltíma sinn og faðir hans, Eric Goes, hefur gagnrýnt ástandið opinberlega.

Mirror segir að Arsenal vonist til að sannfæra Rodrygo um að ganga til liðs við sig með því að bjóða honum tækifæri til að spila í vinstri vængstöðunni – stöðu sem hann hefur ekki haft mikið svigrúm til að spila í hjá Madríd.

„Hann er frábær leikmaður og við þurfum á honum að halda,“ sagði Alonso um Rodrygo nýlega. „Endirinn á síðasta tímabili var erfiður fyrir hann, en hann er núna tilbúinn að njóta sín og sýna gæði sín."
Athugasemdir
banner