Það er oft sagt að fótboltaheimurinn sé lítill. Freyr Alexandersson er í dag þjálfari Brann en hjá félaginu vinnur líka annar þjálfari með Íslandstengingu.
Ole Martin Nesselquist er í dag þjálfari Brann 2, sem er eins konar varalið norska félagsins. Hann var áður aðstoðarþjálfari Rúnars Kristinssonar hjá KR.
Ole Martin Nesselquist er í dag þjálfari Brann 2, sem er eins konar varalið norska félagsins. Hann var áður aðstoðarþjálfari Rúnars Kristinssonar hjá KR.
Nesselquist, sem er 31 árs gamall, var ráðinn aðstoðarþjálfari KR undir lok árs 2022. Hann var svo orðaður við Fram þegar Rúnar var ráðinn þangað en Gregg Ryder vildi líka halda honum í KR. Nesselquist sneri hins vegar aftur til Noregs og vinnur í dag náið með Frey í Brann.
„Við erum með geggjaða akademíu og þeir urðu Noregsmeistarar í U19, U17 og U15. U19 liðið okkar spilar í 2. deild. Ég get sent leikmenn sem eru á bekknum hjá mér til að spila með þeim. Þjálfari þess liðs er Ole Martin sem var aðstoðarþjálfari Rúnars í KR. Það er frábær samvinna á milli aðalliðsins og varaliðsins," sagði Freyr í hlaðvarpi við Fótbolta.net á dögunum. Hann segir marga spennandi leikmenn vera að koma upp hjá félaginu.
En hvernig er að vinna með Ole Martin?
„Það er bara frábært. Hann er að gera frábæra hluti og þekkir hlutverkið sitt. Ég hef verið með U19 þjálfara sem halda að það mikilvægasta í heimi sé að vinna næsta leik og gleyma að við erum að þróa leikmennina. Ole Martin er með auga á því að við erum að þróa leikmenn til þess að vera klárir fyrir aðalliðið. Hann nær á sama tíma góðum úrslitum. Það er mjög gott að vinna með honum og ég er mjög ánægður með það," sagði Freyr.
Athugasemdir