Sir Gareth Southgate segir að hann sakni þess ekki að stýra enska landsliðinu.
Southgate var sleginn til riddara í dag, var heiðraður af Vilhjálmi Bretaprins fyrir framlag sitt til enska fótboltans og fær því Sir fyrir framan nafn sitt.
Southgate lét af störfum síðasta sumar eftir að England tapaði í úrslitaleik EM gegn Spáni en á tæplega átta ára ferli sínum sem landsliðsþjálfari stýrði hann liðinu í tvo úrslitaleiki á EM og hafnaði í fjórða sæti með liðinu á HM 2018.
„Það er dálítið undarleg tilfinning að horfa á liðið sem áhorfandi, en ég sakna þess ekki að stýra því. Það er mikilvægt að ég gefi liðinu og nýjum þjálfara svigrúm. Það er mikil pressa að vera landsliðsþjálfari og allir eru með skoðanir. Nú mun ég styðja liðið úr sófanum heima," segir Southgate.
Hann er fjórði landsliðsþjálfari Englands sem er sleginn til riddara. Hinir eru Sir Walter Winterbottom, Sir Alf Ramsey og Sir Bobby Robson.
Þjóðverjinn Thomas Tuchel er nú landsliðsþjálfari Englendinga.

Sir Gareth Southgate has received a knighthood at Windsor Castle for his services to football ???? pic.twitter.com/eQXXcpt9Um
— Sky Sports News (@SkySportsNews) June 25, 2025
Sir Gareth Southgate ????????????????????????????????
— ITV Football (@itvfootball) June 25, 2025
The former England Manager has received a knighthood from Prince William at Windsor Castle for his services to football ???? pic.twitter.com/6JsCe2oZrO
Athugasemdir