Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fótboltaþjálfari starfar á flugvelli
Luke Williams.
Luke Williams.
Mynd: Swansea
Fótboltaþjálfarinn Luke Williams er núna að vinna á flugvellinum í Bristol. Mynd af honum í vinnunni fór í mikla dreifingu á samfélagsmiðlum um helgina.

Williams, sem er 44 ára, var rekinn frá Swansea í febrúar síðastliðnum og fékk ágætis starfslokagreiðslu.

Hann þarf ekki á pening að halda en langar að vera í vinnu til að halda sér uppteknum. Ákvað hann því að taka að sér vinnu við að aðstoða fatlaða og hreyfihamlaða farþega á Bristol flugvelli.

Hann byrjaði í þessari vinnu fyrir tveimur vikum en Williams hefur aldrei verið hræddur við að vinna. Hann var í alls konar vinnum til að borga fyrir þjálfararéttindi sín.

Hér fyrir neðan má sjá myndina af Williams sem fór í dreifingu.

Athugasemdir
banner