Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man Utd fær upplýsingar um Nkunku
Christopher Nkunku.
Christopher Nkunku.
Mynd: Leiknir
Manchester United hefur haft samband við teymið í kringum Christopher Nkunku og fengið upplýsingar varðandi leikmanninn.

Þetta herma heimildir L'Equipe í Frakklandi.

Man Utd sóttist eftir því að fá að vita hvað félagið þyrfti að gera til að landa Nkunku ef félagið ætlar að reyna að fá hann.

Nkunku er ósáttur með lítinn spiltíma hjá Chelsea og er félagið tilbúið til að selja hann til að fjármagna kaup á nýjum leikmönnum.

Mörg félög hafa verið nefnd til sögunnar sem áhugasöm en Nkunku er með fjögur ár eftir af samningi sínum við Chelsea. Hann hefur meðal annars líka verið orðaður við Arsenal, Bayern München og Tottenham.
Athugasemdir
banner
banner