Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jákvæðar viðræður við Pogba en ekkert samþykkt
Paul Pogba.
Paul Pogba.
Mynd: EPA
Paul Pogba hefur átt í jákvæðum viðræðum við franska félagið Mónakó en það er enn ekkert samþykkt þrátt fyrir fréttir um annað.

Þetta segir Simon Stone, fréttamaður breska ríkisútvarpsins.

Hann segir að það sé enn smá í land en frekari viðræður séu planaðar í þessari viku.

Þessi 32 ára gamli miðjumaður hefur ekki spilað fótbolta síðan í september 2023 eftir að hafa fengið 18 mánaða bann fyrir að falla á lyfjaprófi.

Franski miðjumaðurinn var á sínum tíma talinn efnilegasti miðjumaður Evrópu en hann dalaði eftir mikil meiðslavandræði þegar hann var hjá Manchester United. Síðast var hann á mála hjá Juventus.
Athugasemdir
banner