Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. október 2021 14:30
Elvar Geir Magnússon
Samantekt
Fleiri leikir, nýtt nafn og breytt fyrirkomulag á næsta ári - Íslandsdeildin?
Íslenska deildin verður að öllum líkindum með breyttu sniði á næsta tímabili.
Íslenska deildin verður að öllum líkindum með breyttu sniði á næsta tímabili.
Mynd: Haukur Gunnarsson
Þetta fyrirkomulag þekkist í Danmörku þar sem flestir eru ánægðir með það.
Þetta fyrirkomulag þekkist í Danmörku þar sem flestir eru ánægðir með það.
Mynd: Getty Images
Mun deildin heita Íslandsdeildin?
Mun deildin heita Íslandsdeildin?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Gunnlaugsson, formaður meistaraflokksráðs Víkings.
Heimir Gunnlaugsson, formaður meistaraflokksráðs Víkings.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslandsmótið tekur á sig nýja mynd á næsta ári.
Íslandsmótið tekur á sig nýja mynd á næsta ári.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslandsmótið í fótbolta mun taka á sig nýja og breytta mynd á næsta ári. Nýtt nafn og útlit verður á efstu deild karla og að öllum líkindum verður nýtt fyrirkomulag með fjölgun leikja.

Samningurinn við Pepsi Max er runninn út og Ísland ætlar að fara sömu leið og verið er að fara um allan heim. Deildin mun fá nýtt nafn til frambúðar sem ekki verður tengt styrktaraðila. Líkt og þekkist með Premier League á Englandi, Eliteserien í Noregi og Superliga í Danmörku svo dæmi séu tekin.

Tvískipt deild og 27 leikir á lið
Í nýju keppnisfyrirkomulagi verður fjölgun leikja í deildinni en áfram tólf lið. Það má kalla þetta „dönsku leiðina" en þetta er nánast sama fyrirkomulag og er í Superliga.

- Liðin byrja að mætast heima og að heiman í hefðbundnu fyrirkomulagi en þegar þeim 22 umferðum er lokið verður deildin tvískipt. Sex efstu liðin mætast aftur innbyrðis í efri deild og sex neðstu liðin í neðri deild.

- Liðin byrja þó alls ekki á núlli því þau taka með sér stigin áfram. Þegar deildinni hefur verið tvískipt er svo leikin einföld umferð og því bætast við fimm leikir á hvert lið, alls 27 leikir.

Hvaða lið hefðu farið í efri deildina?
Ef við miðum bara við síðasta tímabil þá hefðu Víkingur (48 stig), Breiðablik (47), KR (41), KA (40), Valur (39) og FH (33) farið í efri deildina og mæst aftur innbyrðis, alls fimm umferðir.

Stjarnan, Leiknir, ÍA, Keflavík, HK og Fylkir hefðu svo mæst í neðri deildinni. Þetta fyrirkomulag gefur fleiri leiki innbyrðis í topp- og líka í fallbaráttunni og ætti því að auka líkurnar á spennandi lokakafla.

Reynslan frá Danmörku
Þetta fyrirkomulag er ekki óumdeilt í Danmörku en þó eru flestir ánægðir með það. Einhver félög vilja frekar fjölga í efstu deild en munstrið er sama og hér á landi, það eru aðallega félögin sem eru núna í B-deildinni eða hafa verið við botninn í efstu deild sem vilja fjölgunarleiðina. Allir vilja vera með í partíinu.

Langflestir telja að þetta fyrirkomulag auki gæðin á fótboltanum. Leikirnir sem eru leiknir innbyrðis í topp sex hlutanum eru spilaðir í háum gæðaflokki og mikill áhugi á þeim leikjum. Umhverfi sem bætir unga leikmenn.

Þegar lið í fallbaráttu lenda í neðri sex hlutanum er möguleiki á því að snúa við taflinu nokkuð hratt. Vissulega geta lið lent í því að siga lygnan sjó og hafa að litlu að keppa þegar í tvískiptinguna er komið en sá möguleiki að hafa að litlu að keppa í lokin. er hvort sem er fyrir hendi í gamla fyrirkomulaginu.

Þess má geta að í Danmörku er reyndar leikin tvöföld umferð eftir tvískiptingu deildarinnar en hér á landi er hugmyndin að hafa hana einfalda.

Er búið að samþykkja tvískipta deild hér á landi?
Nei. En í mars sendu öll tólf félögin í efstu deild karla út viljayfirlýsingu um að taka upp þetta fyrirkomulag, að minnsta kosti tímabundið. Það ætti því ekkert að vera því til fyrirstöðu að þetta verði samþykkt á ársþingi í febrúar og spilað með þessum hætti á næsta ári.

Hvað á deildin að heita?
Nöfnum hefur verið kastað á milli fólks í fótboltahreyfingunni bak við tjöldin. Nöfn eins og Besta-deildin, Eðal-deildin og einfaldlega Úrvalsdeildin hafa verið nefnd.

„Ég sá að Þórir Hákonar lagði fram nafnið Íslandsdeildin. Mér finnst það bara nokkuð flott," sagði Heimir Gunnlaugsson, formaður meistaraflokksráðs hjá Víkingi, þegar rætt var um breytingarnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net.

Í þættinum voru menn sammála um að Úrvalsdeildin væri erfitt því það nafn hefur víðtækt fest sig á samheiti yfir efstu deildir í hvaða íþróttagrein sem er.

Fjölgun liða myndi ekki bæta ekki við gæðaleikjum í deildina
Aftur að sjálfu fyrirkomulaginu. Það virðist algengt að við fyrstu sín sé fólk ekki alveg að kaupa það en margir hafa snúist við þegar þeir hafa kynnt sér það betur.

„Þegar ég heyrði þetta fyrst var ég ekki seldur. En ég hef velt þessu fyrir mér og hef tekið mörg samtöl um þetta. Ég er ekki með neina betri leið. Þetta býður upp á mjög skemmtilega hluti, spennandi baráttu um Evrópusæti og titil," segir Heimir.

„Að sama skapi þætti mér alveg ágætt ef ég væri með lið í neðri hlutanum að eiga eftir leiki gegn fimm slökustu liðum deildarinnar til að bjarga mér. Ég sé alveg kostina í þessu og er hrifnari af þessu en að fara í úrslitakeppni eins og við sjáum í handbolta og körfubolta."

„Eina sem stuðaði mig í þessu er að það sé ekki jafnt hlutfall af heimaleikjum. Víkingur gæti til dæmis leikið tvo útileiki og einn heimaleik við Val. Ég sé samt ekki betri lausn."

Heimir telur að ekki sé rétta leiðin að fjölga liðum í efstu deild því til að bæta íslenskan fótbolta þurfi frekar að fjölga leikjum sem hafa meiri gæði.

„Ég er ekki hlynntur því að fjölga liðum í deildinni því við erum að leitast eftir því að fá fleiri gæðaleiki. Einu skiptin sem ég hef verið hlynntur fjölgun í deildinni er þegar Víkingur hefur verið í þriðja sæti í 1. deild eða í ellefta sæti í efstu. Það er alltaf það sama. Það eru þessi lið sem vilja fjölga," segir Heimir.

Auðvelt að stíga til baka
Í útvarpsþættinum var einnig til umræðu að ef þetta fyrirkomulag myndi ekki þykja vel lukkað á Íslandi sé þá lítið mál að stíga til baka og fara aftur í gamla fyrirkomulagi. Þeir sem greinarhöfundur hefur talað við og þekkja til danska boltans telja þó að það þurfi að gefa þessu fyrirkomulagi að minnsta kosti tvö ár.

Lengingin á keppnistímabilinu
Með fleiri leikjum þyrfti að leika þéttar en nú er gert og þá myndi tímabilið væntanlega lengjast um einhverja daga í báða enda. Þetta gæti þá flækt það að koma bikarkeppninni fyrir í leikjadagatalinu. Í tengslum við nýtt fyrirkomulag er einnig hægt að ræða um vallarmál og gervigrasvelli en við bíðum með þá umræðu þar til síðar.
Útvarpsþátturinn - Bak við tjöldin hjá meisturunum og enski
Athugasemdir
banner
banner
banner