Erling Haaland og David Silva skoruðu mörk Man City þegar liðið vann 2-0 gegn Villarreal á útivelli í Meistaradeildinni í kvöld.
„Það er erfitt að koma hingað, við spiluðum mjög vel. Þeir fengu eitt eða tvö færi undir lokin en við spiluðum frábærlega. Gott skref fyrir okkur í þessari keppni," sagði Pep Guardiola.
Haaland er eini leikmaður liðsins sem hefur skorað meira en eitt mark á tímabilinu en hann skoraði sitt 15. mark í kvöld.
„Það er gott að það var ekki bara Haaland sem skoraði og við fengum fleiri tækifæri fyrir aðra. Tijjani Reijnders og Rayan Cherki höfðu góð áhrif. Lið í spænsku deildinni eru mjög erfið og topp stjóri."
Man City var í miklu brasi á síðustu leiktíð en liðið vann sinn fyrsta útileik í Meistaradeildinni í rúmt ár.
„Síðasta tímabil var ekki gott. Tölurnar í Meistaradeildinni undanfarið ár voru ekki slæmar. Stemningin og hvernig liðið er að spila núna lætur mér líða vel," sagði Guardiola.
Athugasemdir