Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 10:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jóhann Árni framlengir í Garðabæ - Valur sýndi áhuga
Áfram í Garðabæ.
Áfram í Garðabæ.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Jóhann Árni Gunnarsson hefur skrifað undir nýjan samning við Stjörnuna en fyrri samningur hefði runnið út í lok október á þessu ári.

„Jóhann Árni hefur vaxið gríðarlega sem leikmaður undanfarin ár og skipar nú lykilhlutverk innan liðsins. Jói er kraftmikill, skapandi og ávallt tilbúinn að leggja sig 100% fram fyrir liðið sitt og félagið," segir í tilkynningu Stjörnunnar.

Hann skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2027. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafði Valur sýnt honum áhuga.

Jóhann Árni er fjölhæfur miðjumaður, getur leyst allar stöðurnar miðsvæðis. Hann hefur sýnt mjög öflugar rispur með Stjörnunni. Á þessu tímabili hefur hann skorað tvö mörk í átta leikjum í deild og bikar.

Hann hefur byrjað síðustu fimm leiki Stjörnunnar. Fjórir hafa unnist og einn endað með jafntefli.

Hann kom til Stjörnunnar frá uppeldisfélaginu Fjölni fyrir tímabilið 2022. Hann er fæddur árið 2001 og lék á sínum tíma 20 leiki fyrir yngri landsliðin.
Athugasemdir
banner