Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
banner
   fös 27. júní 2025 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM félagsliða: Real Madrid áfram en Salzburg úr leik
Mynd: EPA
Real Madrid er komið áfram í 16-liða úrslit á HM félagsliða eftir sigur á Salzburg í nótt.

Vinicius Junior kom liðinu yfir og Federico Valverde bætti öðru markinu við í uppbótatíma fyrri hálfleiks. Það var síðan Gonzalo Garcia sem innsiglaði sigurinn undir lokin.

Al-Hilal lagði Pachuca í sama riðli en Al-Hilal fer áfram ásamt Real Madrid og RB Salzburg og Pachuca sitja eftir með sárt ennið.

Al Hilal Riyadh 2 - 0 Pachuca
1-0 Salem Al Dawsari ('22 )
2-0 Marcos Leonardo ('90 )

Salzburg 0 - 3 Real Madrid
0-1 Vinicius Junior ('40 )
0-2 Federico Valverde ('45 )
0-3 Gonzalo Garcia ('84 )
Athugasemdir
banner