Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Dagur Dan tengdi saman sigra
Dagur Dan Þórhallsson
Dagur Dan Þórhallsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Dagur Dan Þórhallsson og félagar hans í Orlando City unnu annan leikinn í röð er liðið bar sigur af hólmi gegn St. Louis, 4-2, á CITYPARK-vellinum í St. Louis í nótt.

Bakvörðurinn hefur verið inn og út úr liði Orlando, en hann var að byrja annan leik sinn í röð og virðist hafa tekist að festa sæti sitt á ný.

Þetta var hans 19. leikur í deildinni á tímabilinu og er hann þá kominn með tvö mörk.

Orlando er í 5. sæti Austur-deildarinnar með 33 stig.


Athugasemdir
banner