Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Leggja fram tvennutilboð í Digne og Martínez
Mynd: EPA
Tyrknesku meistararnir í Galatasaray eru að undirbúa tvennutilboð í Lucas Digne og Emiliano Martínez, leikmenn Aston Villa á Englandi.

FootMercato segir að Galatasaray hafi verið í viðræðum við Aston Villa um leikmennina tvo og er sannfært um að það geti landað báðum.

Atlético Madríd er einnig sagt áhugasamt um að fá leikmennina, en Galatasaray hræðist ekki þá samkeppni og eru stjórnarmenn fullvissir um að hafa betur í baráttunni.

Samkvæmt FootMercato er Villa reiðubúið að selja þá saman á 46 milljónir punda.

Manchester United og félög í Sádi-Arabíu fylgjast einnig með stöðu Martínez.

Martínez er 32 ára gamall og verið á mála hjá Villa frá 2020, en Digne, sem er 31 árs, kom til félagsins frá Everton fyrir þremur árum.
Athugasemdir
banner
banner
banner