Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 10:59
Elvar Geir Magnússon
TikTok stjörnur framan á treyju Stefáns Teits
Stefán Teitur (til hægri) með nýja styrktaraðilann framan á sér.
Stefán Teitur (til hægri) með nýja styrktaraðilann framan á sér.
Mynd: Preston North End FC
Preston hefur tilkynnt um nýjan styrktaraðila sem verður framan á treyjum félagsins á komandi tímabili. Það eru kartöflusölumennirnir SpudBros sem öðluðust vinsældir í gegnum samfélagsmiðla og eru með 4,2 milljónir fylgjenda á Tiktok.

Landsliðsmaðurinn Stefán Teitur Þórðarson spilar fyrir Preston í ensku B-deildinni og var einn af leikmönnunum sem fengnir voru í fyrirsætuhlutverk þegar nýju styrktaraðilarnir voru kynntir.

Bræðurnir Jacob og Harley Nelson stofnuðu SpudBros og byrjuðu að selja hádegismat úr gömlum sporvagni í miðbæ Preston. Þeir slógu í gegn á samfélagsmiðlum og fyrirtækið stækkaði hratt.

„Þetta er draumur að rætast, hvað get ég sagt meira? Við viljum hjálpa PNE að skrifa söguna. Vonandi toppar liðið á þessu tímabili og sýnir hvað býr í Preston," segir Harley.

„Við erum stoltir Preston menn og munum alltaf gefa til baka og styðja borgina sem bjó okkur til. Að hafa farið frá því að hlaupa í kringum völlinn sem lukkukrakkar í að sjá vörumerkið okkar framan á treyjum Preston North End er meira en sérstök tilfinning."

Preston hafnaði í 20. sæti Championship-deildarinnar á síðasta tímabili.



Athugasemdir
banner
banner