Heimild: Vísir
Birkir Bjarnason íhugar að leggja skóna á hilluna en félag hans, Brescia, rambar á barmi gjaldþrots. Liðið hafnaði í 15. sæti ítölsku B-deildarinnar á síðastliðnu tímabili fékk stigafrádrátt vegna fjárhagsvandræða og féll.
„Núna er ég aðeins að kíkja í kringum mig og skoða hvað er í boði. Ég þarf náttúrulega að fara að taka ákvörðun um hvort ég ætli að halda áfram að spila eða ekki. Það þarf að vera eitthvað mjög spennandi, annars mun ég ekki nenna því. Ég ákveð þetta í rólegheitunum," segir hinn 37 ára gamli Birkir í samtali við Vísi.

Hann segir frá því að Brescia hafi ætlað að gera sig að yfirmanni fótboltamála en nú séu þær áætlanir horfnar enda útlit fyrir að félagið verði dæmt gjaldþrota og gert að áhugamannafélagi.
Fari svo að Birkir leggi skóna á hilluna þá gerir hann það sem leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi. Hann lék 113 A-landsleiki en lék síðast í landsliðstreyjunni árið 2022.
Athugasemdir