Stelpurnar í íslenska landsliðinu eru að leggja lokahönd á undirbúning sinn fyrir Evrópumótið í Sviss. Þær eru núna í æfingabúðum í Stara Pazova í Serbíu þar sem hitinn er gríðarlegur.
Talið er að hitastigið gæti náð 40 gráðum í dag og þegar farið er inn á Google er þar viðvörun frá stjórnvöldum í Serbíu þar sem fólk er varað við hitanum. „Mjög alvarleg viðvörun um hátt hitastig," segir einfaldlega.

Stelpurnar eru að æfa þessa stundina í um 34 gráðum en hitinn mun hækka meira síðar í dag.
„Það er vatnspása reglulega. Ég er allavega ekki vön þessu. Við erum líka með klaka og eitthvað sem við setjum á bakið," sagði Katla Tryggvadóttir, leikmaður landsliðsins, við Fótbolta.net í gær.
Þetta er fínn undirbúningur fyrir Sviss þar sem hitinn þar verður ekki mikið minni.
Hér fyrir neðan má sjá myndband sem KSÍ deildi á samfélagsmiðlum í gær þar sem má sjá hvernig leikmenn reyndu að kæla sig niður.
Leikir Íslands á EM:
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
Athugasemdir