Bayern hefur náð munnlegu samkomulag við Nick Woltemade um að hann gangi til liðs við félagið frá Stuttgart í sumar.
Þessi 23 ára gamli framherji hefur samþykkt fimm ára samning við félagið.
Þessi 23 ára gamli framherji hefur samþykkt fimm ára samning við félagið.
Viðræður milli félaganna eru ekki hafnar en samningur hans við Stuttgart rennur út árið 2028 og það er ekkert riftunarverð í samningnum hans.
Woltemade, landsliðsmaður þýska U21 liðsins, er markahæsti leikmaðurinn á EM U21 með sex mörk en Þýskaland mætir Englandi í úrslitum á laugardaginn.
Hann skoraði 17 mörk í 33 leikjum fyrir Stuttgart á síðustu leiktíð.
Athugasemdir