
Davíð Snorri Jónasson mun starfa sem njósnari fyrir íslenska kvennalandsliðið í kringum Evrópumótið.
Hann var viðstaddur þegar Finnland, fyrstu andstæðingar Íslands á EM, töpuðu naumlega gegn gífurlegu sterku liði Hollands í vináttulandsleik í gær.
Hann var viðstaddur þegar Finnland, fyrstu andstæðingar Íslands á EM, töpuðu naumlega gegn gífurlegu sterku liði Hollands í vináttulandsleik í gær.
Markamaskínan Vivianne Miedema kom Hollandi yfir snemma og var staðan orðin 2-0 eftir hálftíma leik þar sem Miedema skoraði aftur. Holland gerði hins vegar ekki fleiri mörk í leiknum og minnkaði Finnland muninn undir lokin.
Davíð Snorri mun svo skila af sér skýrslu um finnska liðið fyrir leikinn sem fer fram 2. júlí. Það er fyrsti leikurinn á Evrópumótinu.
Íslenska liðið spilar í kvöld æfingaleik gegn Serbíu, en það er síðasti leikurinn hjá okkar stelpum fyrir mót.
Leikir Íslands á EM:
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
Athugasemdir