Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Arngrímur og Baldur framlengja við FH til 2028
Baldur Kári verður hjá FH til 2028
Baldur Kári verður hjá FH til 2028
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arngrímur Bjartur Guðmundsson og Baldur Kári Helgason hafa báðir framlengt við FH til ársins 2028. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FH-ingum á Facebook.

Arngrímur er tvítugur varnarmaður sem hefur spilað 7 leiki í Bestu deildinni á þessu tímabili.

Hann lék sinn fyrsta keppnisleik með FH árið 2021 og eyddi þá seinni hluta tímabilsins 2023 á láni hjá Ægi.

Varnarmaðurinn verður áfram í herbúðum FH-inga til 2028 eins og jafnaldri hans, Baldur Kári.

Baldur, sem er miðjumaður, er fastamaður í liði FH-inga og kominn með 30 leiki í Bestu deildinni frá því hann lék sinn fyrsta leik árið 2021 og hefur skorað 1 mark.

FH-ingar eru í 8. sæti Bestu deildarinnar með 14 stig eftir tólf umferðir.
Athugasemdir
banner
banner