Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 14:30
Elvar Geir Magnússon
Alveg sannfærður eftir að hafa rætt við Slot
Kerkez var kynntur hjá Liverpool í dag.
Kerkez var kynntur hjá Liverpool í dag.
Mynd: Liverpool
Ungverski bakvörðurinn Milos Kerkez hefur gengið til liðs við Liverpool frá Bournemouth fyrir 40 milljónir punda.


Kerkez sagði að samtal við stjórann Arne Slot hafi algjörlega sannfært sig um að Liverpool væri rétti valkosturinn fyrir sig.

„Þegar ég talaði við stjórann vissi ég að þetta væri rétt ákvörðun. Slot sýndi mér hvernig hann gæti bætt mig sem leikmann og hvernig ég gæti hjálpað liðinu," segir Kerkez.

„Þegar stjórinn kemur og talar við þig þá er það stórt. Það sýnir mikla virðingu. Ég hugsaði aldrei út í það að ég vildi fara í eitthvað annað félag."

Liverpool hefur verið duglegt á leikmannamarkaðnum og hafði áður fengið Jeremie Frimpong og Florian Wirtz til félagsins.
Athugasemdir
banner