Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 07:30
Brynjar Ingi Erluson
HM félagsliða: Sergio Ramos fór með Monterrey í 16-liða úrslit - Inter nýtti sér klaufagang River
Inter vann riðilinn
Inter vann riðilinn
Mynd: EPA
Monterrey flaug áfram með laglegum sigri á Urawa Reds
Monterrey flaug áfram með laglegum sigri á Urawa Reds
Mynd: EPA
Spænski miðvörðurinn Sergio Ramos leiddi Monterrey áfram í 16-liða úrslit HM félagsliða í nótt með því að vinna öruggan 4-0 sigur á Urawa Reds.

Ramos spilaði allan tímann í miðri vörn hjá Monterrey og tókst að halda hreinu.

German Berterame skoraði tvö og þá gerðu þeir Nelson Deossa og Jesus Corona sitt hvort markið.

Inter náði rétt svo að bjarga sér fyrir horn í 2-0 sigri liðsins á River Plate.

Staðan var markalaus þegar hálftími var eftir og var Inter þá á leið úr leik.

Lautaro Martínez átti skot í stöng og fimm mínútum síðar fékk Lucas Martínez Quarta, varnarmaður River, reisupassann fyrir glórulausa tæklingu eftir að hann missti boltann frá sér og á Henrikh Mkhitaryan sem var að sleppa í gegn.

Fáeinum mínútum síðar skoraði hinn 19 ára gamli Francesco Pio Esposito eftir sendingu frá Petar Sucic og á lokamínútunum skoraði Alessandro Bastoni markið sem gulltryggði sigurinn.

Gonzalo Montiel, hetja Argentínu á HM 2022, sá sitt annað gula spjald í uppbótartíma og voru River-menn níu eftir á vellinum þegar flautað var til leiksloka.

Inter tók toppsæti E-riðils með 7 stig og kom Monterrey næst á eftir með 5 stig, en River og Urawa Reds eru úr leik.

Inter mætir Fluminense í 16-liða úrslitum á meðan Monterrey spilar við Borussia Dortmund.

Inter 2 - 0 River Plate
1-0 Francesco Esposito ('72 )
2-0 Alessandro Bastoni (‘90 )
Rautt spjald: Lucas Martinez Quarta, River Plate ('66), Gonzalo Montiel, River Plate (‘90)

Urawa Red Diamonds 0 - 4 Monterrey
0-1 Nelson Deossa ('30 )
0-2 German Berterame ('34 )
0-3 Jesus Corona ('38 )
0-4 Nelson Deossa (‘90 )
Athugasemdir
banner
banner