Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 20:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í viðræðum við Origi um riftun á samningi
Mynd: EPA
Divock Origi hefur alls ekki náð sér á strik eftir að hafa gengið til liðs við AC Milan frá Liverpool árið 2022.

Hann kom við sögu í 36 leikjum á sínu fyrsta tímabili með Milan og skoraði aðeins tvö mörk. Hann var lánaður til Nottingham Forest tímabilið á eftir og hann skoraði aðeins eitt mark í 22 leikjum.

Hann var látinn æfa með unglingaliði Milan og kom ekkert við sögu hjá aðalliðinu á síðustu leiktíð.

Félagið reynir allt til að losa sig við hann en félagið er í viðræðum við leikmanninnum riftun á samningi hans en hann á aðeins eitt ár eftir. Ekkert samkomulag er í höfn en hann vill fá bætur.
Athugasemdir
banner
banner