Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Gengur illa að selja Malacia
Mynd: EPA
Manchester United gengur ekkert að selja hollenska vinstri bakvörðinn Tyrell Malacia en þetta kemur fram í Athletic.

Félagið ætlar að losa sig við marga leikmenn í sumarglugganum og samkvæmt Athletic er Malacia einn af þeim sem eru sagðir á útleið.

Hins vegar hefur gengið illa að finna kaupanda og ekki mikill áhugi á varnarmanninum til þessa.

Malacia, sem er 25 ára gamall, eyddi síðari hluta tímabilsins á láni hjá PSV í Hollandi og hjálpaði þar liðinu að vinna deildarmeistaratitilinn með dramatískum hætti.

Félög eru hikandi við að fá hann vegna meiðslasögu hans, en hann hefur aðeins spilað 47 leiki með United frá því hann kom árið 2022 og fékk þá takmarkaðan mínútufjölda með PSV.

Ekki er talið líklegt að kaupandi finnist fyrr en seint í glugganum, en United þarf að losa sig við hann í sumar til að eiga ekki í hættu á að missa hann frítt á næsta ári.
Athugasemdir