Thomas Mikkelsen, fyrrum sóknarmaður Breiðabliks, hefur gefið það út á samfélagsmiðlum að hann sé hættur í fótbolta.
Danski sóknarmaður kom til Blika um mitt tímabilð 2018 og náði að skora 41 mark í 59 leikjum í efstu deild á Íslandi yfir þrjú og hálft tímabil. Heilt yfir skoraði Thomas 72 mörk í 94 mótsleikjum í Breiðablikstreyjunni.

Mikkelsen segir það erfiða ákvörðun að hætta en hún sé nauðsynleg vegna meiðsla sem hann varð fyrir í september síðastliðnum. Hann segir að sérfræðingar hafi talið það best að hann myndi ekki spila fótbolta aftur.
„Það er erfitt að binda endi á eitthvað sem hefur tekið svo mikið pláss í mínu lífi. Ég lít til baka stoltur og með mikið þakklæti," segir Mikkelsen en í færslu sinni þakkar hann meðal annars fyrir tíma sinn hjá Breiðabliki.
„Fótboltinn hefur gefið mér ævilangar vináttur og minningar sem ég mun aldrei gleyma," segir Mikkelsen.
Athugasemdir