Franski U21 landsliðsmaðurinn Loum Tchaouna er á leið til Burnley frá Lazio fyrir 12 milljónir punda. Sky Sports greinir frá samkomulagi félaganna.
Burnley, sem snýr aftur í ensku úrvalsdeildina í haust, náði samkomulagi við Lazio um kaup á Tchaouna í gær og er verður gengið frá kaupunum eftir Evrópumót U21 landsliða.
Þessi 21 árs gamli hægri vængmaður á enn eftir að ná samkomulagi við Burnley um kaup og kjör en það verður klárað eftir helgi.
Lazio mun fá 10 prósent af endursöluverði Tchaouna.
Tchaouna spilaði 37 leiki í öllum keppnum með Lazip á síðustu leiktíð og kom að þremur mörkum.
Athugasemdir