Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 10:39
Elvar Geir Magnússon
Átján ára Argentínumaður lést í aðgerð á hné
Camilo Nuin lést meðan verið var að framkvæma aðgerð á hné.
Camilo Nuin lést meðan verið var að framkvæma aðgerð á hné.
Mynd: Instagram/@nuinccamilo
Argentínski miðjumaðurinn Camilo Nuin lést á meðan verið var að framkvæma aðgerð á hné hans.

Hann var 18 ára gamall og var í yngri flokkum stórliðanna Boca Juniors og Independiente áður en hann samdi við B-deildarfélagið San Telmo 2022.

Dánarorsök hefur enn ekki verið gefin upp.

„Það er með djúpri sorg sem við tilkynnum andlát Camilo Ernesto Nuin, leikmanns í unglinga- og varaliði okkar, sem gekkst undir aðgerð í dag,“ sagði í yfirlýsingu San Telmo.

„Félagið syrgir og verður ekki með starfsemi í dag. Við sendum samúðarkveðjur til fjölskyldu hans, vina og liðsfélaga á þessum erfiða tíma og erum þeim til taks ef á þarf að halda.“

Argentínska fótboltasambandið sendi frá sér yfirlýsingu þar sem forseti þess, Claudio Tapia, og stjórnin senda samúðarkveðjur.


Athugasemdir