Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 20:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Caulker: Spilum mjög aðlaðandi sóknarbolta
Mynd: Stjarnan
Steven Caulker, fyrrum leikmaður Liverpool og Tottenham, var kynntur í dag sem leikmaður og aðstoðarþjálfari hjá Stjörnunni. Ljóst er að þetta eru ein stærstu félagaskipti í sögu íslensks fótbolta.

Þessi 33 ára miðvörður á að baki 123 leiki í úrvalsdeildinni. Hann fær leikheimild með liðinu þann 17. júlí þegar félagaskiptaglugginn opnar.

<>„Ég er mjög spenntur. Ég kom hingað fyrir nokkrum vikum til að kynnast staðnum og hitta starfsfólkið. Ég er kominn hingað sem leikmaður og aðstoðarþjálfari svoo ég mun koma til með að aðstoða þjálfarann á æfingum, m.a. fyrir undanúrslitin í næstu viku (gegn Val í Mjólkurbikarnum)," sagði Caulker í myndbandi sem Stjarnan birti í dag.

Caulker er mjög hrifinn af leikstíl Stjörnunnar.

„Það er skorað mikið. Mitt verk er að sjálfsögðu á hinum enda vallarins að koma í veg fyrir þessi mörk. Það sem ég hef kunnað vel við er sóknarleikurinn, sérstaklega eins og við spilum, hefur verið mjög aðlaðandi og áhrifamikill," sagði Caulker.



Athugasemdir
banner