Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
banner
   fös 27. júní 2025 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Íslendingar fá nýja þjálfara
Þórir Jóhann Helgason
Þórir Jóhann Helgason
Mynd: EPA
Eusebioo Di Francesco hefur verið ráðinn stjóri Lecce sem leikur í efstu deild á Ítalíu.

Þetta er athyglisverð ráðning að því leytinu til að Di Francesco var stjóri Venezia sem féll úr efstu deild á síðustu leiktíð. Hann skrifar undir eins árs samning með möguleika á framlengingu ef honum tekst að halda liðinu uppi.

Venezia hefur ráðið Giovanni Stroppa, sem stýrði Cremonense upp í efstu deild í gegnum umspilið á síðustu leiktíð. Hann mun hins vegar halda áfram í næst efstu deild og reyna koma Venezia strax aftur upp.

Þórir Jóhann Helgason er leikmaður Lecce og Bjarki Steinn Bjarkason er leikmaður Veneza. Mikael Egill Ellertsson var leikmaður Venezia á síðustu leiktíð en var seldur til Genoa.
Athugasemdir
banner