Bandaríska félagið Los Angeles FC íhugar að ráða Ange Postecoglou sem stjóra liðsins en þetta kemur fram á BBC.
Steve Cherundolo, núverandi stjóri LAFC, mun yfirgefa félagið þegar tímabilinu í MLS deildinni lýkur í október.
Steve Cherundolo, núverandi stjóri LAFC, mun yfirgefa félagið þegar tímabilinu í MLS deildinni lýkur í október.
Posgecoglou var látinn taka pokann sinn aðeins tveimur vikum eftir að liðið vann Man Utd í úrslitum Evrópudeildarinnar en það var fyrsti stóri titill Tottenham í 17 ár.
Árangurinn í ensku úrvalsdeildinni varð honum hins vegar að falli þar sem liðið hafnaði í 17. sæti og Thomas Frank, fyrrum stjóri Brentford tók við af honum.
Postecoglou hefur einnig verið orðaður við Al Ahli frá Sádi-Arabíu.
Athugasemdir