Grískir fjölmiðlar létu ekki sjá sig á fréttamannafundi íslenska landsliðsins í Aþenu í morgun þar sem æfing var hjá gríska landsliðinu á sama tíma.
Fótbolti.net var eini fjölmiðillinn á fundinum og því var hann með óhefðbundnu sniði.
Fótbolti.net var eini fjölmiðillinn á fundinum og því var hann með óhefðbundnu sniði.
Gylfi Þór Sigurðsson og Kolbeinn Sigþórsson áttu að sitja fyrir svörum ásamt Heimi Hallgrímssyni landsliðsþjálfara.
Leikmennirnir og Heimir ákváðu hins vegar að setja upp léttan leikþátt og láta búningastjórann Sigga Dúllu fá sviðsljósið.
Víðir Reynisson, öryggisfulltrúi landsliðsins, kom með spurningu sem Siggi svaraði.
„Við munum spila 4-4-2 áfram, það verður engin breyting," sagði Siggi ákveðinn þegar hann var spurður í mögulegar breytingar gegn Grikkjum.
Hér að ofan má sjá fréttamannafundinn í heild sinni.






















