Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 30. september 2019 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Fíflaði varnarmann tvisvar og skoraði með hælnum
Alex Collado í leik með Barcelona gegn Arsenal
Alex Collado í leik með Barcelona gegn Arsenal
Mynd: Getty Images
Alex Collado er nafn sem þarf að leggja á minnið en þessi 20 ára gamli leikmaður spilar fyrir B-lið Barcelona. Hann skoraði geggjað mark fyrir liðið í gær.

B-lið Barcelona er í C-deildinni á Spáni en liðið vann Atletico Levante 2-0 um helgina.

Collado, sem er 20 ára gamall Spánverji, en hann þykir með efnilegri leikmönnum til að koma upp úr akademíu Börsunga.

Hann hefur verið að finna sig með B-liðinu en hann gerði ótrúlegt mark um helgina. Hann klobbaði sama varnarmanninn tvisvar áður en hann skoraði með hælnum. Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner