Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
Óskar búinn að æfa skallana - „Þeir eiga ekkert að gleyma mér“
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
   sun 13. mars 2011 23:04
Elvar Geir Magnússon
Kristján Hauksson: Þurftum ekki að gefa þeim þessi mörk
,,Það er alltaf leiðinlegt að tapa, við þurftum ekkert að gefa þeim þessi mörk og áttum að geta haldið þetta út eins og við höfum verið að gera í síðustu leikjum. Það vantaði eitthvað hjá okkur í dag," sagði Kristján Hauksson fyrirliði Fram eftir 2-1 tap gegn Leikni í Lengjubikarnum í kvöld.

,,Leiknismenn voru mjög sprækir og við vissum það svosem alveg. Þeir voru búnir að vinna Vestmannaeyinga og það var ekkert vanmat í gangi. En fyrst þeir unnu þá spiluðu þeir betur en við."

Jón Guðni Fjóluson meiddist með Fram fyrir nokkrum vikum og var ekki með í kvöld. En er vitað hversu lengi hann verðu frá?

,,Nei, hann er að jafna sig, það verður kannski vika eða tvær vikur, ég veit það ekki. Hann verður allavega klár fyrir mót."

Fram hafði unnið tvo leiki í Lengjubikarnum fyrir leikinn gegn Leikni í kvöld. Kristján er ánægður með liðið.

,,Við erum í fínu formi, ég er nokkuð ánægður með liðið. Við höfum verið að spila ágætlega þó við höfum ekki spilað sérstaklega vel í kvöld. Það er ágætis gangur í þessu," sagði Kristján en Fram liðið æfir utandyra allajafna.

,,Já, við erum ekki í neinni höll, það er fínt að venjast veðráttunni úti. Það getur allt gerst í sumar. Við erum með góðan aðstoðarþjálfara sem var búinn að skafa hluta af vellinum og reddaði okkur svo við gátum alveg æft. Það hefur engin áhrif á okkur."
Slapp
banner
banner