Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
Óskar búinn að æfa skallana - „Þeir eiga ekkert að gleyma mér“
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
   mán 28. mars 2011 23:56
Magnús Már Einarsson
Hjörtur Logi: Albrighton var að sparka létt í mig
Magnús Már Einarsson skrifar frá Englandi
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
,,Þetta var frábær sigur hjá okkur. Við vorum allir að berjast og þó að við höfum lent undir þá brotnuðum við ekki niður heldur héldum okkar striki og náðum að setja tvö frábær mörk á þá, og unnum frábæran sigur," sagði Hjörtur Logi Valgarðsson vinstri bakvörður U21 árs landsliðsins eftir sigurinn á Englendingum í kvöld.

,,Við lágum svolítið til baka á tímabili en þegar við fórum fram með boltann og náðum smá spili þá vorum við að opna þá og mér fannst við spila mjög vel í dag."

Hjörtur Logi átti í höggi við Marc Albrighton leikmann Aston Villa en hann er einn besti leikmaðurinn í enska hópnum.

,,Hann er góður leikmaður og mjög snöggur. Það er erfitt að eiga við hann en ég held að ég hafi náð að halda honum þokkalega niðri," sagði Hjörtur en Albrighton var orðinn pirraður á honum í síðari hálfleiknum.

,,Hann var að sparka létt í mig en það var bara smá," sagði Hjörtur.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner
banner
banner