,,Við vorum allan tímann með yfirhöndina," sagði Ejub Purisevic þjálfari Víkings Ólafsvíkur í samtali við Fótbolta.net eftir 1-0 tap gegn ÍR í Breiðholtinu í kvöld.
Víkingar spiluðu oft á tíðum afar vel í leiknum og hefðu hæglega getað skorað.
Þá hefði dómari leiksins, Bjarni Hrannar Héðinsson einnig getað flautað eina ef ekki tvær vítaspyrnu á ÍR-inga.
,,Við sköpuðum í fyrri hálfleik nokkur góð færi og fullt af þeim í síðari hálfleik."
,,Við áttum að fá nokkrar vítaspyrnur en dómarinn virtist vera búinn að ákveða marga hluti fyrirfram."
,,Ég ætla ekki að tala um annað en leikinn því þá lítur það út eins og ég sé að væla en mér finnst að ef við fáum svona dómgæslu og ég er ekki bara að tala um Víking þá ættum við að hætta þessu. Fá bara einhverja vallarstarfsmenn til að dæma."
Nánar er rætt við Ejub í sjónvarpinu hér að ofan.























