Ólafur Kristjánsson þjálfari Breiðabliks var að vonum ekki ánægður með tap sinna manna gegn FH í kvöld
,,Fúlt að tapa. Við gerðum ekki nóg til að vinna leikinn. Við nýttum ekki færin sem við sköpuðum okkur á fyrstu 20 mínútunum og þegar þeir skora markið gerðist það sem er svoldið einkennandi fyrir leikinn, við fórum of langt frá þeim, bæði mönnunum sem senda sem og Emil sem skorar, " sagði Ólafur í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
,,Það er bara að bretta upp ermarnar og reyna að gera betur í næsta leik, það er ekkert annað í boði. Það er hægt að velta sér upp úr því hvort að maður er í erfiðri stöðu eða góðri stöðu og spá í það allan daginn."
Nánar er rætt við Ólaf í sjónvarpinu hér að ofan.























